Við ætlum að hittast á fyrsta hittingi ársins á Café Meskí í Skeifunni(hjá Ísbúðinni) miðvikudaginn 24.febrúar kl. 20:00. Þetta er bara létt spjall og kannski fá sér kaffi/kakó og kökusneið. Við héldum fyrsta fundinn þarna og var stemningin góð en fámennt var þó eins og á hinum fundunum, nú er þó komið nýtt ár og nú fjölmennum við á fundi ;)
CCU samtökin voru stofnuð 26. október árið 1995 og eru því 20 ára í dag. Nú ættu allir félagsmenn að vera búnir að fá afmælisblaðið inn um lúguna með boðskorti á afmælismálþing CCU sem verður haldið þann 5. nóvember á Nauthól. Hvetjum alla sem geta til þess að mæta, hlusta á fjóra flotta fyrirlestra og þiggja veitingar á eftir. Skráning á
Heilsulæsi í þína þágu !
Minnum á fræðslufundinn næsta þriðjudag, þann 6. Október. Björn Hermannsson heilsumarkþjálfi fjallar um hvernig hægt er að bæta eigin heilsu og breyta lífsstílnum þannig að þú verðir besta útgáfan af sjálfum þér. Hann mun ræða um ýmsar hliðar IBD af eigin reynslu, benda á gagnlegar upplýsingar um sjúkdómana og svara spurningum úr sal.
Fundurinn hefst kl 20.00 í sal Vistor, Hörgatúni 2, Garðabæ.
Allir velkomnir !
Við í Ungliðahóp CCU ætlum í keilu saman miðvikudaginn 9.september í keiluhöllinni í Egilshöll. Mæting kl 20.00.
Allir ungliðar með Colitis Ulcerosa og Crohn's innan eða utan samtakanna á aldrinum 16-30 ára eru velkomnir og kostar ykkur ekki krónu :)
Vonumst til að sjá sem flesta :)
Nú er fréttabréfið fyrir júlímánuð komið út og smá sumarfrí framundan hjá stjórninni. Næsta fréttabréf kemur út í september og fyrsti fræðslufundur haustsins verður í lok sama mánaðar.
Hafið það sem allra best í sumar !
Komið er út nýtt EFFCA tímarit og finna má áhugavert efni um það sem er að gerast hjá EFFCA ásamt sögum og upplýsingum um IBD frá ýmsum stöðum í heiminum. Kynntur er alþjóðlegi IBD dagurinn sem verður haldinn þann 19.maí. Ungliðahópur EFFCA hefur einnig skoðað aðra valkosti þegar kemur að barneignum heldur en hefðbunda meðgöngu. Tekið var viðtal við tvær konur með IBD sem hafa gengið í gegnum margt til að eignast barn. Að lokum er vísindaleg grein um nýtt lyf sem hefur enn sem komið er gefið góða raun og er umtalað í IBD samfélaginu.
Hvetjum alla til að taka þátt í 1. maí kröfugöngu Öryrkjabandalagsins. Slagorðið í ár er „Atvinna fyrir alla“ og verður dreift nokkur þúsund höfuðbuffum líkt og í fyrra.
Auk þess verður safnað undirskriftum þar sem skorað er á stjórnvöld að lögfesta Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Undirskriftunum verður meðal annars safnað á þar til gerða miða sem festir verða á hvert buff. Krafan um atvinnu fyrir alla er meðal annars tilkomin vegna þess að á síðustu mánuðum hefur það sýnt sig að atvinnulífið er ekkert sérstaklega opið fyrir því að ráða fólk með skerta starfsgetu í vinnu. Gangan hefst kl. 13:30 frá Hlemmi en einnig er hægt að mæta í gönguna á Lækjartorgi eða hitta okkur á Ingólfstorgi. Sýnum samstöðu og mætum öll !
Ef einhver vill aðstoða við dreifingu buffa og halda utan um gönguna er áætlað að hittast á skrifstofu ÖBÍ Sigtúni 42 kl. 11:30. Súpa og brauð verður í boði til að stilla saman strengi og safna orku. Skrá þarf þátttöku í súpu til:
Nýtt fréttabréf fyrir apríl mánuð er komið út. Þar erum við aðallega að kynna næsta evrópufund ungliðahreyfingar Efcca sem verður haldinn í Tampere í Finnlandi 16.-19. júlí. CCU áætlar að senda tvö ungmenni á aldrinum 18 til 30 ára á fundinn og hvetjum við unga fólkið til að sækja um. Umsóknarfrestur er til 30 apríl en nánari upplýsingar er að finna í fréttabréfinu.