Lífeyrismál og almannatryggingar - 5. mars 2026
Næsti fræðslufundur CCU verður sameiginlegur með Stómasamtökunum, fimmtudagskvöldið 5. mars. Fyrirlesari verður Björn Berg Gunnarsson sem er ráðgjafi í lífeyrismálum. Hann mun fjalla um uppbyggingu lífeyriskerfisins og fara yfir þá valkosti sem standa til boða við úttekt lífeyris og samspil lífeyris við almannatryggingakerfið. Fundurinn verður haldinn í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8, fyrsta hæð til hægri og hefst kl. 20:00. Kaffi og veitingar verða á boðstólum og húsið opnar 19:30


