CCU - Crohn’s og Colitis Ulcerosa samtökin
  • Sáraristilbólga - Colitis Ulcerosa

    • Langvinnur bólgusjúkdómur í þörmum
    • Kemur fram í ristli og / eða endaþarmi
    • Einkenni eru m.a. blóðugur niðurgangur og verkir
    • Orsakir eru óþekktar og oftast er meðhöndlað með lyfjum
  • Svæðisgarnabólga - Crohn's sjúkdómur

    • Langvinnur bólgusjúkdómur í þörmum
    • Algengastur í neðsta hluta smáþarma
    • Greinist yfirleitt í ungum einstaklingum
    • Orsakir eru óþekktar og oftast er meðhöndlað með lyfjum
  • Helstu markmið CCU samtakanna

    • Stuðningur við nýgreinda einstaklinga
    • Stuðla að aukinni almennri þekkingu um sjúkdómana
    • Stuðla að útgáfu og þýðingu á fræðsluefni
    • Að starf samtakanna nái um land allt
  • CCU samtökin voru stofnuð í október árið 1995

    Samtökin eru hagsmunasamtök fólks með Svæðisgarnabólgu - Crohn's
    sjúkdóm og Sáraristilbólgu - Colitis Ulcerosa

Næsti fræðslufundur CCU

11. apríl 2024

Nýjasta fréttabréfið

Líkaðu við okkur

Fræðslufundinum sem frestað var í vor verður haldinn fimmtudagskvöldið 8. október 2020. Þeir sem vilja mæta á staðinn eru velkomnir og salurinn er það stór að við getum virt bæði 1 og 2 m regluna eftir þörfum. Fundurinn verður líka "Live" í lokaða umræðuhópnum á fésbókinni.

Fyrirlesari á fundinum verður hjúkrunarfræðingurinn Margrét Marín Arnardóttir. Hún lauk BS námi í hjúkrunarfræði frá HÍ árið 2002, MS námi í klínískri hjúkrun við HÍ áríð 2016 og hefur unnið á speglunardeild LSH síðan árið 2008. Margrét er formaður Innsýnar, fagdeildar hjúkrunarfræðinga starfandi við lungna- og meltingarfærarannsóknir. Hún er einnig tengiliður Íslands við ESGENA (The European Society of Gastroenterology and Endoscopy Nurses and Associates) og fer á ráðstefnur á þeirra vegum þar sem hún kennir og leiðbeinir hjúkrunarfræðingum notkun áhalda við ýmsar gerðir speglana.

Margrét segir: “ Í meistararitgerð minni “Líðan og lífsgæði einstaklinga með bólgusjúkdóma í meltingarvegi” skoða ég mest andlega líðan einstaklinga með Crohn’s sjúkdóm og Ulcerative Colitis og velti fyrir mér hvort samræður (e. Partnership as practice) við hjúkunarfræðinga geti bætt líðan að einhverju marki.

Þar sem áhugi minn liggur að andlegri líðan, gerði ég verkferil fyrir einstaklinga með bólgusjúkdóma í meltingarvegi sem koma í speglun. Í verkferlinum er lagt fyrir einstaklinganna ESAS matstækið sem mælir m.a. andlega líðan. Með þessu matstæki vonast ég til að ná til þeirra einstaklinga sem eru í þörf fyrir sálræna aðstoð.” 

Fundurinn verður í sal Vistor, Hörgatúni 2 Garðabæ og hefst kl. 20:00.