CCU - Crohn’s og Colitis Ulcerosa samtökin

Næsti fræðslufundur CCU

Verður í september

Nýjasta fréttabréfið

Líkaðu við okkur

Brakandi hnetusmjörsbitar með súkkulaði
  • 125g fínt hnetusmjör
  • 60 g hlynsíróp
  • 1 tsk vanillu extract
  • 5 rískökur (poppkex)
  • Súkkulaðitoppur
  • 98g dökkt súkkulaði
  • 3 tsk kókosolía
  • ¼ tsk sjávarsalt

 

Aðferð:

  • Sníðið bökunarpappír í 14cm x23cm bökunarform (5.5inch x 9inch)
  • Blandið hnetusmjöri, sírópi og vanilludropum saman og hrærið vel.
  • Brjótið rískökurnar í stóra skál og hellið hnetusmjörsblöndunni yfir og hrærið vel.
  • Hellið blöndunni í bökunarformið og dreifið jafnt út. Leggið annan bút af bökunarpappír yfir og þrýstið blöndunni í formið með höndunum. Með því eru minni líkur á að bitarnir molni í sundur þegar þeir eru skornir. Fjarlægið papprírinn.
  • Setjið súkkulaðið og kókosolíuna í skál og inní örbylgjuofn eða bræðið á lágum hita yfir vatnsbaði. Ef notaður er örbylgjuofn er gott að stilla á stuttan tíma í einu (20sek), hræra á milli og endurtaka þar til súkkulaðið er bráðið.
  • Hellið súkkulaðinu yfir hnetusmjörsbotninn og stráið sjávarsalti yfir. Frystið í 30 mín.
  • Skerið niður í bita og njótið.